RISE á Akureyri
RISE Fluguveiði Kvikmyndahátíð var haldin í fyrsta sinn á Íslandi árið 2011 í Bíó Paradís í Reykjavík. Uppselt var á sýninguna og var stærsti salur kvikmyndahússins smekkfullur af ástríðufullum veiðimönnum og konum sem gæddu sér á tveggja tíma veislu fyrir augað. Heyrst hefur að stór hluti gesta hafi farið beint út á tún að æfa köstin að sýningu lokinni.
Í kjölfar vinsælda hátíðarinnar árið 2011 hefur verið ákveðið að setja hana upp aftur árið 2012 og aftur verður sýningin í Bíó Paradís. En í þetta sinn ætlum við líka að leggja land undir fót og halda sýningu á Akureyri daginn eftir sýninguna í Reykjavík.
Sýningin á Akureyri fer fram þann 11. mars n.k.á Sportvitanum Strandgötu og hefst kl. 20:00. Húsið opnar kl. 19.30 í síðasta lagi og hægt verður að kaupa sér þær veitingar sem til sölu eru á staðnum. Hægt er að reikna með að sýningin taki um það bil 2 klukkustundir með hléum.
Sportvitinn Strandgötu
Aðstaðan á Sportvitanum er flott
Fyrir þá sem ekki þekkja Sportvitann þá er þar glæsileg aðstaða til að sýninga á hvers kyns myndefni en nýji skjárinn þeirra er heilir 30 fermetrar að stærð. Ljóst er að stemmningin verður rosaleg á Sportvitanum þegar saman koma fjöldinn allur af fluguveiðimönnum og konum að horfa á það alflottasta fluguveiðiefni sem völ er á þessa dagana.
Miðasala fer fram á heimasíðu Stangveiðifélags Akureyrar www.svak.is og er miðaverð kr. 1.700,- en ástæðan fyrir lægra miðaverði á Akureyri er lægra leiguverð á húsnæði undir sýninguna.
Við vonumst til að sjá sem flesta veiðimenn koma og fagna þessu með okkur á Sportvitanum þann 11. mars n.k. kl. 20:00.
Beinn hlekkur á miðasöluna: http://www.svak.is/default.asp?content=sidur&;pId=33&svaedi=Rise
Frekari upplýsingar má finna á:
Heimasíðu hátíðarinnar: www.rise.icelandangling.com
Facebook síðu hátíðarinnar: www.faceboo.com/risekvikmyndahatid
Tengiliður: Stjáni Ben – This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Facebook síða Sportvitans: https://www.facebook.com/sportvitinn
Heimasíða SVAK: http://svak.is/
Styrktaraðilar hátíðarinnar eru:
Bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda á Akureyri 28. mars – 10. apríl
Hafið – Fiskiprinsinn. Fiskbúð í Kópavogi
IG Veiðivörur
Veiðikortið 2012
Veiðivon – Mörkinni 6 – www.veidivon.is
Veiðiþjónustan Strengir






