RISE Akureyri frestað til 18. mars
Mér þykir það mjög leitt að þurfa að fresta sýningunni á Akureyri sem átti að vera í kvöld. Ákveðið hefur verið að færa sýninguna fram á næsta sunnudag í staðinn. Sami staður, Sportvitinn Strandgötu 53, sami tími - 20:00.
Þeir sem ekki geta komið þá og eru búnir að kaupa sér miða eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við mig og við græjum endurgreiðslu á miðanum.
Bestu kveðjur,
Stjáni Ben
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
8675200
Fluginu aflýst! Frestum sýningunni á Akureyri
Vegna veðurs hefur öllu flugi til Akureyrar verið aflýst í dag. Bið alla sem eiga miða á hátíðina að hafa samband við mig í síma 867 5200 eða á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Nú á sér stað atkvæðagreiðsla um það hvenær á að halda sýninguna og þegar málin skýrast þá læt ég vita.
Stjáni
RISE hátíðin um helgina!!
Í fyrra var pakkað í Bíó ParadísÞá er komið að því sem áhugafólk um stangveiði hefur beðið eftir í rúmt ár en RISE fluguveiði kvikmyndahátíðin verður haldin nú um helgina. Við byrjum í Reykjavík í Bíó Paradís á laugardaginn kl. 20:00 en förum svo til Akureyrar á sunnudaginn þar sem við höldum sýningu á Sportvitanum Strandgötu 53 (gamli Oddvitinn). Sýningin á Akureyri hefst kl. 20:00 en húsið opnar 19:30.
Miðasala er í fullum gangi og enn eru um 20 miðar eftir á sýninguna í Reykjavík en á morgun (föstudag) byrjum við að selja ósóttar pantanir í Veiðivon, Mörkinni 6. Enn er nóg til af miðum á Akureyri en hægt er að kaupa miða á heimasíðu SVAK og í Veiðivörum.is sem staðsett er í Amarohúsinu.
Ég verð á staðnum á Sportvitanum frá kl. 14:00 á sunnudag þannig að hægt verður að kaupa miða á sýninguna á Akureyri á Sportvitanum allan daginn sem og í hurðinni um kvöldið.
Miðaverð í Reykjavík er kr.2.100,-
Miðaverð á Akureyri er kr.1.700,-
Happdrætti
Að venju verða dregnir út happdrættisvinningar í hléi og að þessu sinni eru vinningarnir fjölbreyttir. Veiðivon gefur flugulínur og flugubox með flugum í, IG veiðivörur gefa Streamworks aukahlutasett sem innihalda m.a. flugubox, klippur og tangir. Mjög vandaðar vörur. Veiðikortið gefur Veiðikortið, Hið íslenska bókmenntafélag gefur bókina „Íslenskar veiðiár“ og Iceland Angling Travel gefur DVD myndina The Source – Ísland eins og í fyrra.
Eftirpartý – Óopinbert!
Strákarnir á Enska barnum verða svo með veiðimannatilboð á bjór á barnum að sýningu lokinni fyrir þá sem vilja lengja kvöldið sitt og halda áfram að skemmta sér með öðrum áhugamönnum um stangveiði.
Hvetjum alla til að tryggja sér miða strax á þessa frábæru sýningu sem haldin er í Bíó Paradís á laugardaginn og á Sportvitanum Akureyri á sunnudag.
Bestu kveðjur,
Stjáni Ben
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
RISE Akureyri - ATH!!!
Vegna veðurs er búið að fresta fluginu mínu ítrekað. Næstu fréttir eru kl.16:15. Vona að ég komist norður í dag en ef öllu flugi verður aflýst þá frestum við sýningunni.
Bið alla að fylgjast með Facebook síðu hátíðarinnar: www.facebook.com/risekvikmyndahatid
Eins að senda mér póst á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. svo ég hafi tölvupóstföng og geti átt samskipti við ykkur þannig. Viljið þið líka láta vini ykkar vita af þessu.
Bestu kveðjur,
Stjáni Ben - 8675200
Hátíðin að bresta á!!
Þetta er búin að vera löng bið. Nú er meira en ár síðan RISE hátíðin var haldin síðast, fyrir troðfullu húsi í Bíó Paradís. Menn eru búnir að landa fleiri en einum síðan þeir fengu síðast að tylla sér í betri sætin með popp og kók og njóta þess að horfa á flottasta veiðiefni sem hægt var að komast í á þeim tíma.
Nú eru aðeins 3 dagar í að þetta geti veiðimenn og konur leyft sér á ný. Nú er komið að enn flottara veiðiefni í fimm frábærum veiðimyndum. Rifjum aðeins upp dagskrána hérna neðst í fréttinni. Það skal tekið fram að myndirnar eru ótextaðar.
Seinni partinn í dag mun ég tilkynna það hvað verður í verðlaun í happdrættinu okkar en við erum nú þegar komin með fjölda flottra vinninga og það er í undirbúning að halda smá eftirpartý á öldurhúsi í Höfuðborginni að sýningu lokinni. Þetta er því tilvalið að skella sér á flotta sýningu og kíkja síðan út með vinum og vinkonum að sýningu lokinni.
Minnum á að miðar eru alveg að klárast en enn er hægt að nálgast miða í Veiðivon, Mörkinni 6. Minni ykkur sem eigið ósóttar pantanir að drífa í að sækja þær í Veiðivon.
Dagskrá RISE 2012
Sipping dry
Breathe
A backyard in nowhere
GEOFISH: A Mayan prophecy
HATCH






