RISE - Fluguveiði Kvikmyndahátíð
RISE Fluguveiði Kvikmyndahátíð 2012RISE - Fluguveiði Kvikmyndahátíð er alþjóðleg kvikmyndahátíð (e. fly fishing film festival) runnin undan rifjum Nick Reygaert, leikstjóra og eiganda Gin-Clear media á Nýja Sjálandi. Nick er einna þekktastur fyrir fluguveiði kvikmyndir og þá kannski helst "The source" þríleikinn þar sem þriðja og síðasta myndin í seríunni er The Source - Ísland.
RISE hátíðin var fyrst haldin í Ástralíu en hefur nú verið sýnd í ótal löndum út um allan heim og er orðinn fastur liður í dagskránni hjá evrópskum fluguveiðifíklum. Myndirnar sem sýndar eru er hægt að flokka sem "ævintýra fluguveiðikvikmyndir" (e. adventure driven fly fishing films).
RISE hátíðin var fyrst haldin hér á landi árið 2011 í Bíó Paradís í Reykjavík. Upplýsingar um RISE hátíðina 2012 munu birtast hér á síðunni innan skamms en hátíðin verður haldin í mars 2012 en nákvæmar tímasetningar liggja ekki fyrir að svo stöddu.
Hægt er að fylgjast með nýjust fréttum og fleiru tengdu RISE Fluguveiði Kvikmyndahátíð á Facebook ásamt því að við mælum með að þið skráið ykkur á póstlistann okkar.
Skráðu þig á póstlistann okkar
Kíktu á okkur á Facebook
Frekari upplýsingar :
Stjáni Ben
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
S: 867 5200






